MERKA
Heilsulind

UM OKKUR
Hugmyndin




Styrkjum fátækt fólk í Afríku...

Við vinkonurnar höfum alltaf haft mikinn áhuga á heilsu fólks og vellíðan. Í gegnum tíðina höfum við tekið eftir því að fólki sem líður vel er almennt skemmtilegt og jákvætt. Þess vegna langaði okkur að gera eitthvað sem fær fólk til að líða vel og vera glatt.
Árið 2012 fórum við til Úganda í hjálparstarf, þar kynntumst við lífi og lífsháttum fátækts fólks. Við dvöldum þar í mánuð, í þorpi sem heitir Dei. Þar hjálpuðum við fólki sem bjó við mjög slæm lífskjör. Meðal annars kenndum við því að byggja vatnsbrunna en áður þurfti fólkið að ganga langa leið til þess að sækja sér vatn og bera það aftur heim. Einnig fórum við með börn úr þorpinu á markað, þar keyptum við föt og aðrar nauðsynjar handa þeim. Eftir þessa ferð langaði okkur að gera meira til þess að hjálpa þessu fólki. Þess vegna ákváðum við að gera hugmyndina okkar að veruleika. Tveimur árum síðar opnuðum við heilsulindina okkar. 35% af heildartekjum heilsulindarinnar á ári fer til fátækra í Afríku. Ágóðann látum við Rauða krossinn fá, sem hjálpar fólki um allan heim. Rauði krossinn sér til þess að peningurinn fari til Arfríku.
Hægt er að afla sér nánari upplýsinga um hjálparstarf inn á :http://www.raudikrossinn.is/ og https://www.unicef.is/